Ársfundur og ársskýrsla LSR og LH
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var haldinn þriðjudaginn 22. maí á Nordica Hótel. Þar var gerð grein fyrir ársreikningum sjóðanna fyrir árið 2006, niðurstöðu tryggingafræðilegra úttekta á stöðu sjóðanna, fjárfestingarstefnu þeirra og ávöxtun.
Hægt er að nálgast Ársskýrslu LSR og LH fyrir árið 2006 á rafrænu formi á heimasíðu LSR. Hægt er að nálgast prentað eintak af ársskýrslunni á skrifstofu sjóðanna í Bankastræti 7. Ef óskað er eftir því að fá ársskýrsluna senda í pósti þá sendið póst á netfang lsr@lsr.is.Hægt er að nálgast eldri ársskýrslur LSR og LH á heimasíðu LSR.