Breytingar á vöxtum fasteignalána

15.11.2024

Frá og með 15. nóvember breytast vextir á nýjum fasteignalánum LSR. Vextir óverðtryggðra lána lækka um 0,5% og vextir verðtryggðra lána hækka um 0,2%.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

  • Óverðtryggðir vextir lækka um 0,5 prósentustig og verða 9,0%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.
  • Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,2 prósentustig og verða 4,5%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
  • Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,2 prósentustig og verða 4,5%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR .