Bleiki dagurinn 2024

23.10.2024

Bleikur-dagur-2024-xStarfsfólk LSR lét ekki sitt eftir liggja á Bleika deginum, 23. október, og klæddist bleiku fyrir allar þær konur sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Bleiki dagurinn er liður í átakinu Bleika slaufan, sem er á vegum Krabbameinsfélagsins. Nánar er hægt að fræðast um þessi mál á vef Krabbameinsfélagsins og hvetjum við sjóðfélaga LSR og landsmenn alla til að kynna sér átakið og boðskap félagsins.