Ársfundur LSR og LH
Ársfundur LSR og LH verður haldinn í dag miðvikudaginn 23. maí kl. 15 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.
Á fundinum verður gerð grein fyrir skýrslum stjórna LSR og LH, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt, skuldbindingum launagreiðenda, fjárfestingarstefnu og breytingum á samþykktum.
Ársskýrsla LSR og LH fyrir árið 2017 er komin út. Vakin er athygli á að ársskýrslan er eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á vef LSR.