Ársfundur LSR og LH

09.05.2016

 

Ársfundur LSR og LH verður haldinn þriðjudaginn 17. maí kl. 15 í húsnæði LSR við Engjateig 11, 105 Reykjavík. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum. 

Á fundinum verður gerð grein fyrir skýrslum stjórna LSR og LH, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt, skuldbindingum launagreiðenda og fjárfestingarstefnu. 

Ársskýrsla LSR og LH fyrir árið 2015 er komin út. Vakin er athygli á að ársskýrslan er eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á vef LSR.  Hér má nálgast nýjustu ársskýrslu á PDF formi.