Fundir
LSR heldur reglulega kynningar- og fræðslufundi fyrir sjóðfélaga.
LSR býður upp á fræðslu um lífeyrismál á vinnustöðum og hjá stéttarfélögum sé þess óskað.
Ársfundur LSR 2024 var haldinn þriðjudaginn 7. maí 2024 á Hilton Reykjavík Nordica.
Upplýsingar um starfsemi á árinu 2023
Ársfundur LSR 2023 var haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 á Hilton Reykjavík Nordica.
Upplýsingar um starfsemi á árinu 2022
Ársfundur LSR 2022
Upplýsingar um starfsemi á árinu 2021
Kynningar- og fræðslufundir um lífeyrismál fyrir virka sjóðfélaga
Reglulega eru haldnir kynningar- og fræðslufundir fyrir virka sjóðfélaga í A- og B-deild LSR í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
Tilgangur fundanna er að fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.
Glærukynningar frá síðustu fundum
- A-deild, B-deild geymdur réttur og Séreign LSR (900 KB)
- B-deild LSR (800 KB).
Kynningar- og samráðsfundur fyrir sjóðfélaga á lífeyri
Reglulega heldur LSR kynningar- og samráðsfund fyrir sjóðfélaga á lífeyri og maka þeirra.
Tilgangur fundanna er að veita sjóðfélögum upplýsingar um afgreiðslu lífeyris, áhrif kjarasamninga á lífeyrisgreiðslur og framkvæmd meðaltals- og eftirmannsreglu.
Þá er einnig fjallað um önnur hagsmunamál sem varða lífeyrisþega og starfsemi sjóðanna almennt.
Smelltu hér til að skoða glærukynningu frá síðasta fundi (600 KB) |