Gott að hafa í huga fyrir lántöku
Áður en lán er tekið er lánsumsækjendum bent á að skoða væntanlega greiðslubyrði lána miðað við mismunandi lengd lána, tegund þeirra (afborgunarlán/jafngreiðslulán), mismunandi vexti og verðbólguvæntingar. Gott er að setja upp mismunandi forsendur í lánareiknivél LSR.Hér að neðan er að finna nokkur atriði sem er gott að hafa í huga fyrir lántöku. Athugið að ekki er um tæmandi upptalningu að ræða.
- Er nauðsynlegt fyrir mig að taka lánið?
- Til hvers ætla ég að nýta lánið?
- Hvenær ætla ég mér að vera hætt/ur greiðslu lánsins?
- Hver er greiðslubyrði lánsins?
- Get ég staðið við áætlaðar afborganir lánsins?
- Hversu hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum mínum fer í greiðslu lána?
- Hver er kostnaður við lántöku?
- Hvort henta mér betur fastir eða breytilegir vextir?
- Hvort henta mér betur jafnar afborganir af höfuðstól (afborgunarlán) eða jafnar greiðslur (jafngreiðslulán/annuitetslán)?
- Er hægt að greiða lánið upp fyrr án kostnaðar?
- Hvaða áhrif hefur verðbólga á endurgreiðslu lánsins?
- Get ég staðið við afborganir þó að verðbólga fari hækkandi?
- Get ég staðið við afborganir vegna annarra atvika, t.d. að laun mín lækki?
- Hvernig hefur verðbólga þróast?
- Hvernig hafa breytilegir vextir þróast?
- Hvað gerist ef lánið fer í vanskil?