Hlutverk og áherslur
Stefnuyfirlýsing:
LSR tileinki sér ábyrga starfshætti, með vönduð vinnubrögð, fagmennsku og frumkvæði að leiðarljósi. Sjóðurinn leggi áherslu á fyrirmyndarþjónustu og öfluga upplýsingatækni. Þannig verði LSR traustur lífeyrissjóður og sjóðfélögum örugg samfylgd.
Hlutverk LSR er:
- Að greiða sjóðfélögum lífeyri.
- Að tryggja sjóðfélaga fyrir tekjumissi í kjölfar örorku og stuðla að fjárhagslegu öryggi maka og barna við andlát sjóðfélaga.
- Að taka við iðgjöldum og varðveita upplýsingar um réttindi sjóðfélaga.
- Að ávaxta fjármuni sjóðsins með sem bestum hætti með hliðsjón af fjárfestingarstefnu og að teknu tilliti til áhættu.
Áherslur
A. Sjóðfélagar:
- Að sjóðfélagar, makar þeirra og börn fái réttar greiðslur á réttum tíma.
- Að veita góða þjónustu, með áherslu á öruggar upplýsingar, traustar ráðleggingar, gott viðmót og stuttan svartíma.
- Að móttaka og skráning iðgjalda gefi ætíð rétta mynd af réttindum sjóðfélaga.
- Að gefa sjóðfélögum góðar upplýsingar um inneign, réttindi og starfsemi sjóðanna almennt.
- Að sjóðfélagar eigi kost á lánum frá lífeyrissjóðunum til langs tíma.
- Að sjóðfélagar geti valið milli ólíkra leiða í viðbótarlífeyrissparnaði.
B. Kynningarmál:
- Að veita sjóðfélögum góðar upplýsingar um réttindaávinning sinn, reglur um lífeyrisréttindi og starfsemi sjóðanna.
- Að kynna launagreiðendum reglur um sjóðina, sem nauðsynlegt er að þeir hafi vitneskju um vegna greiðslu iðgjalda, framkvæmdar á eftirmannsreglu og ábyrgðar á skuldbindingum.
- Að upplýsingar á heimasíðu sjóðanna gefi góða mynd af starfsemi þeirra og að auðvelt verði fyrir sjóðfélaga að nálgast upplýsingar á henni um inneign, áunnin réttindi og stöðu lána.
- Að launagreiðendur geti notað heimasíðu sjóðanna til að leita upplýsinga um reglur, um greiðslu iðgjalda, framkvæmd eftirmannsreglu, stöðu viðskiptareikninga og til rafrænna skila á iðgjöldum.
- Að gefa út fréttabréf með reglulegum hætti.
- Að halda kynningarfundi fyrir sjóðfélaga, m.a. í samvinnu við stéttarfélög þeirra og fyrir launagreiðendur.
- Að senda upplýsingaefni til nýrra sjóðfélaga.
- Að yfirlit ásamt upplýsingum um afkomu sjóðanna verði sent til allra virkra sjóðfélaga eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
C. Ávöxtun:
- Að leitast við að ná sem bestri ávöxtun með hliðsjón af fjárfestingarstefnu og áhættu.
- Að beita markvissum eignastýringaraðferðum, byggðum á fjárfestingarstefnu, sem yfirfarin er ekki sjaldnar en einu sinni á ári.
- Að hafa mikla áhættudreifingu.
- Að mæla ávöxtun og áhættu reglulega.
- Að bjóða sjóðfélögum í viðbótarlífeyrissparnaði að velja ávöxtunarleiðir með mismunandi eignasamsetningu og áhættu.
D. Samfélagsleg ábyrgð:
- Að mikilvægi samfélagslegs hlutverks lífeyrissjóðanna verði haft að leiðarljósi í allri starfsemi þeirra.
E. Samtök launafólks:
- Að hafa góð samskipti við stéttarfélög sjóðfélaga, forsvarsmenn þeirra og trúnaðarmenn á vinnustöðum.
- Að hafa frumkvæði að því að veita stéttarfélögum upplýsingar um starfsemi sjóðanna.
F. Ríkissjóður og aðrir launagreiðendur:
- Að hafa góð samskipti við forsvarsmenn ríkissjóðs og aðra launagreiðendur sem greiða iðgjald til sjóðanna.
- Að gefa reglubundnar upplýsingar um skuldbindingar lífeyrissjóðsins og skuldbindingar ríkissjóðs og einstakra launagreiðenda gagnvart sjóðunum.
- Að hafa góð samskipti við þá starfsmenn, sem annast launamál hjá einstökum launagreiðendum, vegna skila á iðgjöldum og framkvæmdar eftirmannsreglu.
G. Starfsmenn:
- Að laða til starfa hæft starfsfólk og gefa því tækifæri til að nýta kunnáttu sína og frumkvæði.
- Að hafa skýra starfsmannastefnu, þar sem kveðið er á um skriflega ráðningarsamninga, skriflegar starfslýsingar, símenntun starfsmanna, starfsmannasamtöl o.fl.
- Að stuðla að því í hvívetna að starfsmenn LSR séu vel upplýstir um málefni sjóðanna.
- Að aðbúnaður og vinnuumhverfi starfsmanna sé ætíð sem best.
- Að hafa góð samskipti við stéttarfélög starfsmanna sjóðanna.
H. Hagkvæmni í rekstri:
- Að gæta fyllstu hagkvæmni í rekstri sjóðanna.
- Að sjá til þess að kostnaður haldist innan skilgreindrar kostnaðarviðmiðunar og áætlunar hverju sinni.
- Að skilvirkt innra eftirlit sé fyrir hendi og að það verði í stöðugri þróun.
- Að meta reglubundið hvort hagkvæmt sé að fela öðrum aðilum tiltekna þætti í starfsemi sjóðanna.
I. Upplýsingakerfi:
- Að sjóðirnir hafi góð upplýsingakerfi til þess að sinna öllum þáttum starfseminnar.
- Að sjálfvirkni verði aukin þar sem því verði við komið, t.d. með rafrænum iðgjaldaskilum.
J. Tryggingafræðileg athugun:
- Að fylgjast vel með tryggingafræðilegri stöðu sjóðanna á hverjum tíma og þeim forsendum sem notaðar eru við mat á henni.
K. Markmiðssetning, skriflegir verkferlar, áhættugreining og innra eftirlit:
- Að setja skýr markmið um alla helstu þætti í starfsemi sjóðanna, bæði til skemmri og lengri tíma. Þau verði síðan yfirfarin með reglulegum hætti.
- Að gerð verði skrifleg lýsing á öllum helstu verkferlum.
- Að greining á helstu áhættuþáttum í starfsemi sjóðanna sé jafnan fyrir hendi.
- Að skrifleg lýsing á skipulagi innra eftirlits liggi fyrir.
L. Viðhorfs- og árangursmælingar:
- Að viðhorfs- og árangursmælingar séu eðlilegur hluti af starfsemi sjóðsins.
M. Eftirlitsaðilar:
- Að samstarf við eftirlitsaðila verði gott og upplýsingagjöf til þeirra verði með sem bestum hætti.