Útgreiðslur tilgreindrar séreignar

Vegna aldurs

Útborgun á tilgreindri séreign getur hafist við 62 ára aldur og skulu greiðslur dreifast að lágmarki fram að 67 ára aldri. Ef inneign sjóðfélaga er undir ákveðinni viðmiðunarfjárhæð er hægt að óska eftir eingreiðslu á heildarinneigninni. Viðmiðunarfjárhæðin er 1.822.190 kr. m.v. nóvember 2024 og breytist í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs.

Eftir að 67 ára aldri hefur verið náð er heildarinneign tilgreindrar séreignar laus til útgreiðslu. Mánaðarlegar greiðslur á tilgreindri séreign eru afgreiddar 1. hvers mánaðar. Umsókn þarf að berast sjóðnum fyrir 25. hvers mánaðar. Tekjuskattur er dreginn af við útborgun.

Vegna örorku

Heimilt er að fá tilgreinda séreign greidda út fyrir 62 ára aldur ef um örorku er að ræða. Inneign skal þá dreift jafnt á 7 ár, miðað við 100% örorku. Ef örorka er metin minni en 100% lækkar árleg greiðsla í sama hlutfalli og útborgunartíminn lengist sem því nemur.

Sjóðfélagi sem hefur öðlast rétt til útborgunar vegna örorku getur óskað eftir útborgun með eingreiðslu sé inneign undir ákveðinni viðmiðunarfjárhæð, sem er sú sama og fyrir útgreiðslur vegna aldurs (sjá hér fyrir ofan).

Vegna andláts

Tilgreind séreign erfist og er laus til útborgunar við andlát sjóðfélaga og greiðist beint til lögerfingja. Tekjuskattur er dreginn af tilgreindri séreign við greiðslu til erfingja en ekki erfðafjárskattur. Erfingjar þurfa að sækja um skiptingu séreignar en eiga þann kost að geyma inneignina og ávaxta áfram eða sækja um útborgun hennar. Ef lögerfingjar eru ekki til staðar rennur tilgreind séreign inn í dánarbú.