Maka- og barnalífeyrir
Trygging við fráfall sjóðfélaga
Eftirlifandi maki sjóðfélaga á rétt á ævilöngum makalífeyri. Barnalífeyrir er greiddur til 18 ára aldurs.
Makalífeyrir
Eftirlifandi maki á rétt á makalífeyri sem greiddur er ævilangt en fellur niður ef makinn gengur í hjónaband að nýju. Makalífeyrir ávinnst á hjúskapartíma og helst sú réttindaávinnsla þrátt fyrir hjúskaparslit.
Fjárhæð makalífeyris fer eftir áunnum réttindum látins sjóðfélaga og fær makinn helming af þeim rétti.
Eftirlifandi maki á rétt á 20% að auki að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Uppfylla þarf a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum fyrir 20% viðbótarréttindum:
- að hinn látni sjóðfélagi hafi við andlátið verið í starfi er veitti honum aðild að sjóðnum,
- að hann hafi verið byrjaður að taka lífeyri og upphaf lífeyristöku hans hafi verið í beinu framhaldi af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum,
- að hann hafi greitt iðgjald til sjóðsins af fullu starfi í 15 ár eða lengur og ekki greitt iðgjald til annars lífeyrissjóðs eftir að greiðslum til þessa sjóðs lauk.
20% viðbótarréttindi miðast við að hinn látni hafi verið í fullu starfi við starfslok, en eru hlutfallslega minni ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli.
Dæmi:
Hinn látni hafði greitt í sjóðinn í 25 ár og áunnið sér 50% lífeyrisrétt. Makinn fær helming af þeim rétti + 20% sem gera samtals 45%.
Hafi hinn látni áunnið sér 50% lífeyrisréttindi en hætt og farið að greiða annað er réttur makans 25%.
Barnalífeyrir
Börn og kjörbörn látinna sjóðfélaga og örorkulífeyrisþega eiga rétt á barnalífeyri til 18 ára aldurs. Sama gildir um fósturbörn sem sjóðfélagi hafði á framfæri sínu að mestu eða öllu leyti. Barnalífeyrir greiðist til framfæranda.
Fullur mánaðarlegur barnalífeyrir er kr. 23.074.
Flýtileiðir
- Stafræn umsókn um lífeyri Krefst rafrænna skilríkja í síma