Iðgjaldaskil og skilagreinar
Rétt iðgjaldaskil
Það er bæði launagreiðendum og sjóðfélögum í hag að iðgjaldaskil séu rétt. Reglurnar eru mismunandi eftir sjóðum og því mikilvægt að tileinka sér rétt vinnubrögð strax í upphafi.
Merkja þarf allar skilagreinar með réttu SAL númeri til auðkenningar
Allir lífeyrissjóðir hafa lífeyrissjóðanúmer til auðkenningar. Í daglegu tali nefnast þau SAL númer.
Eftirfarandi SAL númer eru í notkun hjá LSR:
- 650 B-deild - dagvinna
- 653 B-deild - vaktaálag
- 654 B-deild - iðgjaldafríir
- 657 B-deild - grunnskólakennarar
- 658 B-deild - grunnskólakennarar iðgjaldafríir
- 660 A-deild
- 670 S-deild - Séreign LSR
Vinsamlega hafið samband við sjóðinn til að fá upplýsingar um bankareikninga vegna iðgjaldaskila í A-deild og B-deild.
Vegna iðgjaldaskila í Séreign LSR
Greiða skal iðgjöld í Séreign LSR inn á reikning:
- Nr. 0334-26-58850
- Kt. 421198-2259 Lífeyrissj.starfsm.rík. S-deild