Umframgreiðslur og uppgreiðslur lána
Hægt er að greiða aukalega inn á lán og greiða upp lán að fullu hvenær sem er án uppgreiðslugjalds. Það er gert með því að skrá sig inn á Mínar síður á vef LSR.
Greiða inn á lán
Á Mínum síðum er hvort tveggja hægt að stofna staka umframgreiðslu inn á lán eða setja upp umframgreiðslusamning með sjálfvirkum mánaðarlegum greiðslum.
Krafa birtist í heimabanka innan klukkustundar eftir skráningu. Krafan er valkvæð í hvert skipti og fellur niður 3 dögum eftir gjalddaga ef hún er ekki greidd.
Til að umframgreiðsla nýtist til að lækka höfuðstól lánsins þarf hefðbundin afborgun að vera greidd áður en að umframgreiðsla er stofnuð. Ef það er ekki gert fer umframgreiðslan í að borga ógreiddan gjalddaga fyrst ásamt áföllnum vöxtum í stað þess að lækka höfuðstólinn.
Greiða upp lán
Stofnuð er krafa á Mínum síðum til að greiða upp lánið. Uppgreiðsluverðmætið er sótt sjálfkrafa og krafa vegna uppgreiðslunnar birtist í heimabanka innan klukkustundar.
Ekki á að greiða hefðbundna afborgun samhliða því að uppgreiðslukrafa er stofnuð þar sem afborgunin er hluti af uppgreiðslukröfunni sem stofnast.
Kröfu vegna uppgreiðslu láns að fjárhæð kr. 10 milljónum eða meira þarf að greiða samdægurs fyrir kl. 16 en fyrir kl. 20:30 vegna lægri upphæða.
Umfram-/uppgreiðslur sjást í greiðslusögu lánsins á Mínum síðum daginn eftir að greiðsla er innt af hendi. Ef umfram-/uppgreiðsla er framkvæmd um helgi berst greiðslan inn á lán næsta virka dag á eftir.