Lög um fasteignalán til neytenda
Lög um fasteignalán til neytenda
Lög um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016 gilda um lánveitingar LSR til einstaklinga. Samkvæmt lögunum ber lánveitanda að veita neytanda ýmsar upplýsingar fyrir lántöku. Þessar upplýsingar á að veita á stöðluðu eyðublaði. Til viðbótar við staðlað eyðublað á lánveitandi að veita neytendum upplýsingar um þróun höfuðstóls og greiðslubyrði og þróun verðlags og vaxta, eftir því sem við á.
Með lögunum er lánveitendum skylt að meta lánshæfi og greiðslugetu neytenda áður en lán er veitt. Til þess að geta framkvæmt greiðslumat þarf lánveitandi að kalla eftir ýmsum upplýsingum frá neytanda. Í lögunum er kveðið á um að lánveitandi skuli aðeins veita lán ef hann telur líklegt að neytandi geti staðið í skilum með það að teknu tilliti til niðurstöðu lánshæfis- og greiðslumats. Tilgangurinn með þessu er að stuðla að ábyrgum lánveitingum.
Lögin kveða á um ýmis réttindi til hagsbóta fyrir neytendur og eru einstaklingar hvattir til að kynna sér þau vel. Lögin í heild sinni má nálgast á vef Alþingis.
Neytendastofa annast eftirlit með lögunum og eru ýmsar upplýsingar tengdar lögunum að finna á vef Neytendastofu.