Breyta láni
Vinsamlega athugið að öllum breytingum á lánum þarf að þinglýsa og í sumum tilfellum samþykki síðari veðhafa og ef til vill greiðslumat.
Veðflutningur
Við kaup og sölu eigna er hægt að flytja lán á milli eigna.
Gögn sem þurfa að fylgja eru:
- Umsókn um veðflutning
- Síðustu kvittanir áhvílandi lána
- Veðbókarvottorð (sjóðurinn getur í flestum tilfellum útvegað rafrænt veðbókarvottorð gegn vægu gjaldi)
- Kaupsamningur
Skilmálabreyting
Umsókn um breytingu á greiðsluskilmálum getur verið beiðni um að lengja/stytta lánstíma, breyta breytilegum vöxtum í fasta vexti, fjölga gjalddögum á ári, breyta tegund láns (úr jafngreiðsluláni í jafnar afborganir og öfugt).
- Athygli er vakin á því að við skilmálabreytingu lána gæti þurft að greiðslumeta.