Fara á efnissvæði
Mínar síður
Fréttayfirlit

Afkoma LSR á árinu 2019

24. apríl 2020

Afkoma á árinu 2019 var afar góð og ein sú besta í sögu LSR. Það var einkar ánægjulegt í ljósi þess að sjóðurinn fagnaði 100 ára afmæli sínu á árinu.

Nafnávöxtun sjóðsins var 16,6% sem svarar til 13,4% hreinnar raunávöxtunar. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar LSR síðustu fimm ára var 5,6% og síðustu tíu ára var það einnig 5,6%. Heildareignir LSR voru 1.017,5 milljarðar króna í árslok 2019 og fjárfestingartekjur ársins námu tæpum 145 milljörðum króna.

Lífeyrisgreiðslur 2019
Á árinu 2019 fengu að meðaltali 25.472 lífeyrisþegar greiðslur frá sjóðunum og nam fjárhæð til þeirra alls 63,2 milljörðum króna. Þá greiddu að meðaltali 32.128 sjóðfélagar iðgjald til sjóðsins á árinu.

Miklar hækkanir voru á hlutabréfamörkuðum heimsins á árinu, þó mismikið eftir heimshlutum. Hlutabréfa­markaðurinn á Íslandi var þar ekki undanskilinn og skiluðu innlend hlutabréf góðri ávöxtun á árinu. 

Lækkandi vaxtastig leiddi jafnframt til verðhækkana á skuldabréfamarkaði en vextir hérlendis eru nú í sögulegu lágmarki.

Verðbréfaeign 2019
Góð eigna- og áhættudreifing er í verðbréfasafni LSR. Í árslok voru 49,3% af eignum sjóðsins í skuldabréfum og um helmingur skuldabréfanna er með ríkisábyrgð. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 36,1% í árslok.

Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok var 729,5 milljarðar króna í A-deild, 268,5 milljarðar króna í B-deild og 19,5 milljarðar króna í Séreign.

 

Fréttabréf LSR