Afkoma LSR á árinu 2015
13. apríl 2016
Nafnávöxtun LSR á árinu 2015 var 8,7% sem svarar til 6,5% hreinnar raunávöxtunar. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar LSR síðustu fimm árin var 6,5%. Tekjur af fjárfestingarstarfsemi á árinu 2015 voru 46,8 milljarðar króna og heildareignir LSR voru 582,9 milljarðar króna í árslok 2015.
Undanfarin þrjú ár hafa eignir LSR aukist um 146 milljarða króna. Það má að stærstum hluta rekja til ávöxtunar sjóðsins því á sama tíma hafa tekjur af fjárfestingum numið 142,6 milljörðum króna.
Góð eignadreifing er í verðbréfasafni LSR sem endurspeglar góða áhættudreifingu. Í árslok 2015 voru 49,4% af eignum sjóðsins í skuldabréfum, þar af 30,2% í skuldabréfum með ríkisábyrgð, 15% í innlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum, 29,5% í erlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum og 6,1% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 31% í árslok.
Ávöxtun innlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina var mjög góð á árinu. Nafnávöxtun var 35,4% sem jafngildir 32,7% raunávöxtun. Ávöxtun erlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina var í takt við erfitt gengi á erlendum hlutabréfamörkuðum. Nafnávöxtun var 2,7% á árinu sem jafngildir 0,7% raunávöxtun. Hlutfall erlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina í safni LSR er að meðaltali hærra en hjá öðrum lífeyrissjóðum á Íslandi. Hátt hlutfall erlendra bréfa hefur því áhrif til lækkunar á ávöxtun LSR á árinu 2015 samanborið við aðra sjóði. Á móti kemur að á árunum 2012-2014 var raunávöxtun erlendra hlutabréfa mjög góð þar sem raunávöxtun erlendra bréfa í safni LSR var að meðaltali 13,3%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar LSR síðustu 5 ár er 6,5%.
Á árinu 2015 fengu 20.019 sjóðfélagar eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá sjóðnum, samtals 37,3 milljarða króna. Að meðaltali greiddu 30.080 sjóðfélagar iðgjald til sjóðsins á árinu, samtals að fjárhæð 25,8 milljarðar króna.