10% hrein raunávöxtun 2021 og fjárfestingartekjur aldrei meiri
7. apríl 2022
Hreinar fjárfestingartekjur LSR námu um 181 milljarði króna á árinu 2021, sem eru mestu fjárfestingartekjur á einu ári í sögu sjóðsins. Hrein raunávöxtun LSR var 10% á árinu og er þetta þriðja árið í röð sem raunávöxtun sjóðsins er 10% eða meiri. Síðastliðin 5 ár hefur raunávöxtun sjóðsins verið að meðaltali 8,3%. Í árslok nam hrein eign sjóðsins rétt um 1.347 milljörðum króna.
Þetta er meðal niðurstaðna ársreiknings LSR fyrir árið 2021, en stjórn sjóðsins undirritaði hann á fundi sínum þann 6. apríl. Þar kemur jafnframt fram að hrein raunávöxtun A-deildar LSR var 10,4%, B-deildar 9,3% og hjá Séreign var hrein raunávöxtun Leiðar I 10,3%, Leiðar II 5,8% og Leiðar III, sem er innlánsleið, -0,1%.
76 milljarðar í lífeyrisgreiðslur
Lífeyrisþegar LSR voru að meðaltali 23.148 í hverjum mánuði á síðasta ári og námu heildarlífeyrisgreiðslur sjóðsins rúmlega 76 milljörðum króna. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins jukust um nærri 7,4 milljarða milli ára. Sjóðfélagar sem greiddu mánaðarlega til LSR voru að jafnaði ríflega 30 þúsund á síðasta ári.
LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins, en hreinar eignir hans eru rétt um 20% af heildareignum allra íslenskra lífeyrissjóða og nema tæpum 42% af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Þá urðu þau tímamót á árinu að A-deild sjóðsins rauf 1.000 milljarða múrinn, en í árslok nam hrein eign deildarinnar um 1.024 milljörðum króna.
Hækkanir á hlutabréfamörkuðum
Góða ávöxtun ársins 2021 má að miklu leyti þakka góðu gengi á hlutabréfamörkuðum bæði hér heima og erlendis. Mest var ávöxtunin á innlendum hlutabréfamarkaði, en erlend hlutabréf skiluðu einnig góðri ávöxtun á árinu. Lágt vaxtastig þýddi hins vegar að ávöxtun á skuldabréfamörkuðum var nokkuð minni. Í árslok var hlutfall erlendra eigna tæplega 43% af eignasafni LSR.
Hlutfall skuldabréfa og innlána fór lækkandi í eignasafni sjóðsins á árinu úr ríflega 52% í rúm 45%, meðal annars vegna þeirra miklu hækkana sem áttu sér stað á hlutabréfamörkuðum og endurspeglaðist í hækkun á virði hlutabréfa í safni LSR. Hlutfall skuldabréfa tryggðum með veði í fasteignum fór lækkandi í eignasafninu en hlutfall grænna og félagslegra skuldabréfa fór vaxandi og námu fjárfestingar sjóðsins í slíkum skuldabréfum 5,9 milljörðum kr. í níu mismunandi skuldabréfaútgáfum.
Tryggingafræðileg staða LSR var í ársreikningnum reiknuð í samræmi við breyttar forsendur reiknigrunns um lífslíkur sem fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti við lok síðasta árs. Forsendurnar miðast við spá um hækkandi lífslíkur til framtíðar, sem leiðir til aukinna lífeyrisskuldbindinga umfram fyrri forsendur. Tryggingafræðileg staða A-deildar LSR miðað við þessar forsendur er -2,7%, en hefði annars verið 5,6% með óbreyttum forsendum.