Spurt og svarað
Hver er munurinn á A-deild og B-deild LSR?
Í byrjun árs 1997 var A-deild LSR stofnuð en hún byggir á kerfi þar sem sjóðfélagi ávinnur sér réttindi miðað við greidd iðgjöld sem taka mið af heildarlaunum.
Á sama tíma var eldra kerfi sjóðsins, B-deild, lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Í B-deildinni ávinna sjóðfélagar sér 2% réttindi á ári miðað við fullt starf. Réttindi sjóðfélaga í B-deild reiknast út frá föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót skv. kjarasamningum við starfslok.
Hverjir greiða til A-deildar og B-deildar LSR?
Allir fastráðnir ríkisstarfsmenn eiga skylduaðild að LSR, nema um annað sé samið í kjarasamningum. Allir nýráðnir starfsmenn greiða í A-deild LSR. B-deild LSR var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum í árslok 1996. Einstaklingar sem ekki hafa skylduaðild að öðrum lífeyrissjóði og eru félagsmenn í aðildarfélögum BSRB, aðildarfélögum BHM, KÍ eða Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eiga þess kost að greiða til A-deildar að uppfylltum ákveðnum aðildarskilyrðum.
Hversu hátt iðgjald er greitt til A-deildar LSR?
Iðgjald til A-deildar er greitt af heildarlaunum. Sjóðfélagi greiðir fast 4% en mótframlag launagreiðanda er 11,5%, sem haldist hefur óbreytt frá stofnun deildarinnar.
Fyrir þá starfsmenn sem hafa greitt í A-deild LSR eða A-deild Brúar fyrir 1. júní 2017 og eiga enn rétt á jafnri ávinnslu réttinda ber launagreiðendum sem eru ekki að meirihluta fjármagnaðir með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum eða framlögum að greiða sérstakt viðbótariðgjald til þess að starfsmenn þeirra haldi jafnri ávinnslu réttinda. Ef þetta iðgjald er ekki greitt reiknast réttindi sjóðfélaga í aldurstengdri ávinnslu og miðast við 67 ára lífeyristökualdur.
Hversu hátt iðgjald er greitt til B-deildar LSR?
Iðgjald til B-deildar greiðist af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót, orlofsuppbót og vaktaálagi. Sjóðfélagi greiðir 4% en mótframlag launagreiðanda er 8%.
Hvað er 32 ára regla í B-deild?
Sá sem nær þessari reglu hefur greitt í sjóðinn í 32 ár og áunnið sér 2% rétt á ári miðað við fullt starf. Velji sjóðfélagi þessa reglu verður hann iðgjaldafrír þegar reglu er náð. Hafi sjóðfélagi greitt í sjóðinn í 32 ár áður en hann verður 65 ára bætist við 1% réttur á ári fyrir fullt starf þar til 65 ára aldri er náð. Ef sjóðfélagi heldur áfram störfum eftir 65 ára aldur bætir hann við sig 2% rétti á ári miðað við fullt starf. Sjóðfélagi getur farið á lífeyri við 65 ára aldur ef um starfslok er að ræða.
Launagreiðandi greiðir bæði iðgjald og mótframlag sjóðfélaga fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót. Skila skal iðgjöldum vegna iðgjaldafrírra sjóðfélaga á sér skilagrein.
Sjóðfélagi verður ekki iðgjaldafrír vegna vaktaálags.
Hvað er 95 ára regla í B-deild?
Þeir sjóðfélagar sem ná samanlögðum aldri og iðgjaldagreiðslutíma upp á 95 ár fyrir 64 ára aldur geta valið þessa reglu. Velji sjóðfélagi þessa reglu fellur iðgjaldagreiðsla niður þegar reglu er náð, en sjóðfélagi bætir við sig 2% lífeyrisrétti fyrir hvert ár í fullu starfi. Lífeyristaka getur hafist þegar reglu er náð en þó aldrei fyrr en við 60 ára aldur ef um starfslok er að ræða.
Launagreiðandi greiðir bæði iðgjald og mótframlag sjóðfélaga fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót. Skila skal iðgjöldum vegna iðgjaldafrírra sjóðfélaga á sér skilagrein.
Sjóðfélagi verður ekki iðgjaldafrír vegna vaktaálags.
Þarf að greiða iðgjald fyrir erlenda ríkisborgara?
Já, það þarf að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð fyrir alla launþega á aldrinum 16-70 ára sem starfa á Íslandi. Hins vegar kunna erlendir ríkisborgarar að eiga rétt til að fá iðgjöld sín endurgreidd þegar þeir láta af störfum. Slíkan endurgreiðslurétt eiga ríkisborgarar utan evrópska efnahagssvæðisins skv. ákveðnum reglum. Sjá nánar kafla um endurgreiðslur til Erlendra ríkisborgara.
Spurt og svarað um breytingar á A-deild LSR 01.06.2017
Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á A-deild LSR?
Alþingi samþykkti breytingar á lögum um LSR í lok desember 2016. Með breytingunum er stefnt að því að samræma lífeyrisréttindi milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Hvað varðar LSR eiga fyrirhugaðar breytingar aðeins við um A-deild sjóðsins en B-deild er með öllu óbreytt. Í þessum breytingum felst að reglur um ávinnslu réttinda munu breytast. Í stað jafnrar ávinnslu réttinda yfir starfsævina mun réttindaávinnsla verða aldurstengd og viðmiðunaraldur lífeyristöku verður 67 ár. Þessar breytingar munu taka gildi frá og með 1. júní 2017. Núverandi sjóðfélagar í A-deild munu halda óskertum réttindum.
Hvað þýðir annars vegar jöfn ávinnsla réttinda og hins vegar aldurstengd ávinnsla réttinda?
Með jafnri ávinnslu er átt við að ávinnsla réttinda er jöfn yfir starfsævina, óháð aldri. Þannig fær hver greiðandi sjóðfélagi sömu réttindi, án tillits til aldurs. Með aldurstengdri ávinnslu réttinda er átt við að réttindi taki mið af aldri sjóðfélaga. Iðgjöld yngri sjóðfélaga eru verðmætari því þau eiga eftir að ávaxtast yfir lengri tíma. Þannig njóta yngri sjóðfélagar ávinnings af því hve lengi þeirra iðgjöld eiga eftir að ávaxtast. Réttindi sjóðfélaga verða því í samræmi við verðmæti iðgjaldanna sem þeir greiða.
Skerðast lífeyrisréttindi núverandi sjóðfélaga í A-deild LSR?
Nei, ekki verður gerð breyting á réttindum sjóðfélaga í A-deild við upptöku á nýju réttindakerfi þann 1. júní 2017. Á það jafnt við um þá sem eru í starfi, eru byrjaðir að taka lífeyri eða eiga eldri réttindi hjá sjóðnum. Þau réttindi verða áfram reiknuð í jafnri réttindaávinnslu. Ríkið hefur greitt 106,8 milljarða króna framlag í lífeyrisaukasjóð sem verður notaður til að bæta þann mismun sem verður á útreikningi á réttindum miðað við aldurstengda ávinnslu og jafna ávinnslu ásamt hækkun viðmiðunaraldurs lífeyristöku úr 65 í 67 ár.
Hverjir eiga rétt á jafnri ávinnslu réttinda?
Þeir sjóðfélagar sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum og hafa greitt til A-deildar einhvern tímann á síðustu 12 mánuðum fyrir 1. júní 2017 eiga rétt á jafnri ávinnslu réttinda. Sjóðfélagar sem starfa hjá öðrum launagreiðendum en ríkisaðilum og sveitarfélögum eiga aðeins þennan rétt að launagreiðandi þeirra samþykki greiðslu sérstaks iðgjalds.
Falli iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga niður til lengri tíma en tólf mánaða fellur réttur hans niður til framtíðar. Heimilt er að framlengja þetta tímabil um 12 mánuði vegna náms, veikinda eða fæðingarorlofs sjóðfélaga. Sjóðfélagi heldur þó alltaf réttinum ef ráðningarsamband er fyrir hendi, t.d. ef hann er í launalausu leyfi.
Sjóðfélagar sem eiga rétt á jafnri ávinnslu réttinda halda þeim rétti þó þeir skipti um starf, að því gefnu að starfið veiti rétt til aðildar að A-deild. Loks geta sjóðfélagar sem hafa einhvern tíma greitt í sjóðinn öðlast rétt til jafnrar ávinnslu réttinda ef þeir hefja greiðslur á ný fyrir 1. júní 2018.
Hækkar lífeyristökualdur þeirra sem greiða í A-deild LSR úr 65 árum í 67?
Sjóðfélagar í A-deild geta hafið töku lífeyris hvenær sem er á aldrinum 60 til 70 ára. Þetta verður óbreytt í nýju kerfi. Viðmiðunaraldur til útreiknings lífeyris hækkar úr 65 árum í 67. Sú breyting hefur ekki áhrif á réttindi núverandi sjóðfélaga A-deildar. Lífeyrisgreiðslur til þeirra verða þær sömu og þær hefðu verið fyrir breytinguna en þeir eiga möguleika á að vinna til 70 ára aldurs og auka enn við réttindi sín.
Hvernig virkar bakábyrgð launagreiðanda vegna A-deildar LSR fyrir 1. júní 2017?
Launagreiðendur bera ekki beina bakábyrgð á A-deild með sama hætti og gildir um B-deild sjóðsins. Launagreiðendur bera ekki ábyrgð á skuldbindingum A-deildar nema með iðgjöldum sínum. Ef A-deild á ekki fyrir skuldbindingum sínum skal hækka mótframlag launagreiðanda.
Verður hin óbeina bakábyrgð launagreiðanda áfram til staðar?
Samhliða fullri fjármögnun skuldbindinga verður ábyrgð launagreiðenda á réttindum í A-deild afnumin.
Sérstakar reglur gilda um þá sem náð hafa 60 ára aldri eða hafa hafið töku lífeyris fyrir 1. júní 2017. Þessir sjóðfélagar munu áfram hafa rétt til sambærilegrar tryggingar og óbeina bakábyrgðin felur í sér. Þessi trygging felur í sér að komi til þess í ljósi tryggingafræðilegrar stöðu A-deildar að rétt sé að skerða eða auka réttindi, skuli slíkar breytingar ekki taka til þeirra sem hafa hafið töku lífeyris eða hafa náð 60 ára aldri fyrir gildistöku nýrra samþykkta sem er 1. júní n.k. Fjárhagsleg áhrif slíkra breytinga skulu gerðar upp með samningi A-deildar LSR við ríkissjóð.
Hvað kemur í stað hinnar óbeinu bakábyrgðar launagreiðanda?
Til að tryggja lífeyrisréttindi núverandi sjóðfélaga og til að mæta halla á stöðu sjóðsins, hefur ríkið greitt til sjóðsins fjárhæð sem nemur 117,2 milljörðum króna. Að auki verða um 8,4 milljarðar króna settar í sérstaka varúðarsjóði sem ætlað er að styðja við lífeyrisaukasjóðina svo þeir geti staðið undir skuldbindingum sínum. Komi í ljós síðar að þessi fjárhæð dugi ekki til eru launagreiðendur skuldbundnir að taka upp viðræður við heildarsamtök opinberra starfsmanna um hvernig við því skuli brugðist.
Af hverju þarf að leggja peninga inn í A-deild LSR vegna breytinganna?
Til að tryggja að núverandi sjóðfélagar haldi jafnverðmætum réttindum eftir breytingarnar þurfti ríkissjóður að leggja A-deild til 106,8 milljarða eingreiðslu. Auk þess þurfti ríkissjóður að greiða 10,4 milljarða króna til að koma áfallinni stöðu deildarinnar í jafnvægi miðað við árslok 2016.
Af hverju er verið að samræma lífeyrisréttindi almennra- og opinberra starfsmanna?
Svo að allir búi við samræmt fyrirkomulag í lífeyrismálum og geti fært sig milli lífeyrissjóða hvenær sem er starfsævinnar án þess að það hafi áhrif á réttindaávinnslu.
Hefur breytingin einhver áhrif á lífeyrisréttindi þeirra sem eru í B-deild LSR?
Nei, fyrirhugaðar breytingar taka eingöngu til A-deildar LSR.
Hvenær eiga breytingar á A-deild LSR að taka gildi?
Breytingar á ávinnslu sjóðfélaga A-deildar taka gildi 1. júní 2017. Sjóðfélagar sem greiða í sjóðinn fram að þeim tíma halda sínum réttindum og jöfn réttindaávinnsla í framtíðinni er tryggð með lífeyrisaukasjóði.
Geta ungir sjóðfélagar notið betri réttinda í nýju kerfi ?
Yngri sjóðfélagar kunna að koma betur út í nýju kerfi. Við töku lífeyris skal sjóðfélagi fá þau réttindi sem hærri eru.
Ég starfa hvorki hjá ríki né sveitarfélögum en hef engu að síður greitt í A-deild LSR. Munu réttindi mín verða skert?
Sjóðfélagar sem greiða í A-deild einhvern tímann á síðustu 12 mánuðum fyrir 1. júní 2017 en starfa hjá öðrum launagreiðendum en ríki og sveitarfélögum eiga áfram rétt á jafnri ávinnslu réttinda ef launagreiðandi þeirra samþykkir að greiða sérstakt viðbótariðgjald fyrir þá.
Ég hef greitt í A-deild Brúar lífeyrissjóðs og á rétt til lífeyrisauka þar. Ég mun fljótlega skipta um starf og á þá að greiða til A-deildar LSR. Munu réttindin mín þá skerðast?
Sjóðfélagar Brúar sem rétt eiga á jafnri ávinnslu réttinda munu einnig eiga rétt á jafnri ávinnslu hjá A-deild LSR skipti þeir um starf og verði sjóðfélagar þar. Þó má ekki hafa liðið lengri tími en tólf mánuðir á milli starfa. Sambærilegt ákvæði verður í samþykktum Brúar sem felur í sér sambærilegan rétt skipti sjóðfélagar um starf og færa sig frá LSR til Brúar.
Hvað gerist ef ég tek mér árs leyfi frá störfum? Held ég þá óskertum réttindum?
Falli iðgjaldagreiðslur þínar niður til lengri tíma en tólf mánaða fellur réttur til jafnrar ávinnslu niður til framtíðar en þó er heimilt að framlengja það tímabil um 12 mánuði vegna náms, veikinda eða fæðingarorlofs. Þú heldur hins vegar alltaf réttinum ef ráðningarsamband er fyrir hendi, t.d. ef þú ferð í launalaust leyfi.
Ef ég fer að vinna á almennum vinnumarkaði og hætti þar með að greiða í A-deild LSR en sný til baka til hins opinbera eftir tólf mánuði eða meira. Held ég þá óskertum réttindum?
Nei, réttur til jafnrar ávinnslu fellur niður eftir 12 mánuði í slíkum tilvikum. Þú heldur þó ávallt áunnum réttindum.
Ég vinn hjá fyrirtæki á almenna vinnumarkaðnum en hef alltaf greitt í A-deild LSR. Mun ég geta greitt áfram í A-deild eftir breytingarnar?
Allir þeir sem eiga eða hefðu átt aðild að A-deild fyrir 1. júní 2017 munu áfram eiga rétt til aðildar að A-deild LSR.
Þeir sjóðfélagar sem vinna hjá launagreiðendum sem eru ekki einkanlega fjármagnaðir með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum eða framlögum ávinna sér þó aðeins réttindi í jafnri ávinnslu ef launagreiðandi þeirra greiðir sérstakt viðbótariðgjald. Ef það er ekki greitt reiknast réttindin í aldurstengdri ávinnslu.
Mun iðgjald mitt til A-deildar LSR/Brúar lífeyrissjóðs verða hækkað vegna breytinganna?
Nei, iðgjald þitt verður eftir sem áður 4%.
Mun mótframlag atvinnurekanda vegna iðgjalda hækka vegna breytinganna?
Launagreiðendur greiða áfram 11,5% mótframlag til LSR þar til iðgjald hefur verið ákveðið í kjarasamningum. Þeir launagreiðendur sem eru á almennum vinnumarkaði og samþykkja að greiða sérstakt viðbótariðgjald vegna áframhaldandi aðildar starfsmanna þeirra að LSR skulu greiða slíkt.
Munu réttindi vegna örorkulífeyris breytast?
Nei, réttindi núverandi sjóðfélaga verða óbreytt. Hjá nýjum sjóðfélögum er meginbreytingin að ávinnsla réttinda verður aldurstengd en skilyrði til að öðlast réttindi eru þau sömu. Sjóðfélagi í A-deild á rétt á örorkubótum ef hann hefur verið metinn 40% öryrki og greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. tvö ár.
Munu réttindi vegna makalífeyris verða skert?
Nei, réttindi núverandi sjóðfélaga verða óbreytt. Hjá nýjum sjóðfélögum er meginbreytingin að ávinnsla réttinda verður aldurstengd en skilyrði til að öðlast réttindi eru þau sömu. Eftirlifandi maki sjóðfélaga LSR sem naut elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum, eða hafði greitt iðgjald til hans a.m.k. 6 mánuði á undanförnum 12 mánuðum, á rétt á lífeyri úr sjóðnum. Fullur makalífeyrir skal greiddur í 36 mánuði og 50% makalífeyrir í 24 mánuði til viðbótar.
Munu réttindi vegna barnalífeyris verða skert?
Nei, rétturinn til barnalífeyris verður óbreyttur. Við fráfall sjóðsfélaga sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins eða notið úr honum örorkulífeyri í sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum, eiga börn hans rétt á lífeyri úr sjóðnum til 22 ára aldurs. Fullur mánaðarlegur barnalífeyrir vegna andláts er 25.172 kr. með hverju barni á mánuði. Fullur mánaðarlegur barnalífeyrir vegna örorku er 18.927 kr. Fjárhæðir miða við apríl 2017.
Ég er lögreglumaður. Verður breyting á reglum um lífeyristökualdur?
Nei, sú sérregla sem gildir um lögreglumenn verður óbreytt. Öllum lögreglumönnum sem eru leystir frá embætti sínu við 65 ára aldur skal reiknuð eftirlaun eins og þeir hefðu starfað til 70 ára aldurs.