Barnalífeyrir
Börn og kjörbörn eftirlaunaþega, látinna sjóðfélaga og örorkulífeyrisþega geta átt rétt á barnalífeyri til 18 ára aldurs. Sama gildir um fósturbörn sem sjóðfélagi hafði á framfæri sínu að mestu eða öllu leyti. Barnalífeyrir greiðist til framfæranda.
Fjárhæð barnalífeyris
Fullur mánaðarlegur barnalífeyrir er föst upphæð sem tekur að jafnaði breytingum einu sinni á ári.
Upphæð fulls barnalífeyris í B-deild er 23.074 kr. á mánuði.
Barnalífeyrir í B-deild
- Greiðist þar til barn verður 18 ára
- Barnalífeyrir vegna andláts er greiddur til barnsins
- Barnalífeyrir vegna örorku er greiddur til framfæranda