Fara á efnissvæði
Mínar síður
Icon User Protection

Ávinnsla réttinda

Þú greiðir 4% af launum og launagreiðandi 11,5%. Þannig myndast eftirlaunaréttindi og mikilvæg réttindi fyrir þig og þína fjölskyldu ef þú verður fyrir áföllum síðar á lífsleiðinni.

Nánar um ávinnslu
Icon Piggy Bank

Eftirlaunagreiðslur

Hefja má töku eftirlauna frá 60 ára aldri og miðast upphæðin við greidd iðgjöld til sjóðsins yfir starfsævina og aldur sjóðfélaga þegar eftirlaunataka hefst.

Nánar um greiðslur
Icon User Group

Skipting milli maka

Tveir meginkostir eru í boði fyrir sambúðaraðila sem vilja skipta með sér lífeyrisréttindum eða greiðslum. Í sumum tilvikum þarf að sækja um skiptingu fyrir 65 ára aldur.  

Nánar um skiptingu milli maka

Skattlagning eftirlauna og lífeyris

Greiða þarf hefðbundinn tekjuskatt af eftirlauna - eða lífeyrisgreiðslum og er skatturinn dreginn af mánaðarlegum greiðslum. Ef þú færð laun eða lífeyri greidd frá fleirum en LSR þarftu að meta hvaða launagreiðandi skuli nýta persónuafslátt og í hvaða skattþrepi skuli skattleggja greiðslur sjóðsins.

Þú berð ábyrgð á að tilkynna sjóðnum í hvaða skattþrepi eigi að skattleggja eftirlauna- eða lífeyrisgreiðslur og hvort nýta eigi persónuafslátt. Þannig kemurðu í veg fyrir að skattgreiðslur séu annað hvort of- eða vanreiknaðar, sem getur leitt til óþæginda síðar.
 
Ef maki fullnýtir ekki persónuafslátt sinn geta eftirlauna- og lífeyrisþegar notað allt að 100% af ónýttum persónuafslátti maka.

Mánaðarleg skattþrep eru þrjú auk skattleysismarka:

  1. Tekjur undir kr. 446.136 (31,48%)
  2. Tekjur frá kr. 446.137 til 1.252.501 (37,98%)
  3. Tekjur yfir kr. 1.252.501 (46,28%)
  4. Skattleysismörk: kr. 206.245 miðað við 100% nýtingu persónuafsláttar