Aðgangur að launagreiðendavef
Innskráning á launagreiðendavef fer fram með rafrænum skilríkjum. Til að skrá sig inn fyrir hönd launagreiðanda þarf einstaklingur að hafa umboð til þess. Starfsfólk LSR hefur umsjón með skráningu umboða, en umboðum getur jafnframt fylgt heimild til þess að gefa öðrum umboð fyrir hönd viðkomandi launagreiðanda.
Til að óska eftir umboði til þess að skila inn skilagreinum fyrir hönd launagreiðanda þarf að senda tölvupóst á idgjold@lsr.is með undirrituðu umboði (PDF-skrá) þar sem fram kemur:
- Nafn og kennitala fyrirtækis/launagreiðanda
- Nafn og kennitala starfsmanns sem fær umboðið og hvort sá aðili hafi heimild til að veita öðrum starfsmönnum umboð
- Hvað umboðið gildir lengi (þ.e. tímabundið eða ótímasett)
- Undirritun/stimplun af yfirmanni fjársviðs eða launadeildar
Nánari upplýsingar má fá með því að hafa samband við iðgjaldadeild LSR með netfanginu idgjold@lsr.is.