Iðgjaldaskil til A-deildar
Iðgjaldagreiðslur til A-deildar standa yfir frá mánuðinum eftir að sjóðfélagi verður 16 ára til og með mánuðinum sem hann verður 70 ára.
Hafa þarf í huga að A-deild LSR er lokaður lífeyrissjóður og mikilvægt er að athuga hvort að aðildarskilyrði séu uppfyllt áður en iðgjöld eru greidd.
Iðgjaldastofn og endurhæfingarsjóður
Iðgjald skal greiða til A-deildar af heildarlaunum. Til iðgjaldastofns skal telja hvers kyns greiðslur sem eru skattskyldar tekjur hjá sjóðfélaganum, svo sem dagvinnulaun, yfirvinnulaun og hvers konar önnur laun, biðlaun, starfslaun, nefndarlaun, stjórnarlaun, greiðslur, fríðindi og hlunnindi, sem eru ígildi launa. Ökutækjastyrki, dagpeninga, fæðispeninga og aðrar slíkar greiðslur skal aðeins telja til gjaldstofns að því leyti sem þær eru ekki endurgreiðsla á útlögðum kostnaði.
Að auki reiknast endurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum sem skal einnig skilast til sjóðsins.
Frágangur skilagreina og greiðsla iðgjalda
Skilagrein skal vera merkt A-deild með SAL númer 660. Kennitala A-deildar er 550197-3409.
Gjalddagi iðgjalda er 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil og skila skal iðgjöldum eigi síðar en síðasta dag þess mánaðar er iðgjald fellur á gjalddaga, annars reiknast dráttarvextir.
LSR býður upp á að krafa myndist sjálfkrafa í heimabanka. Til að óska eftir því skal senda beiðni á idgjold@lsr.is.
Hlutur sjóðfélaga:
4%
Hefðbundið mótframlag launagreiðanda:
11,5%
Lífeyrisaukaiðgjald (sjá nánari umfjöllun fyrir neðan):
4,58%
Endurhæfingarsjóður:
0,10%
Nánar um lífeyrisaukaiðgjald í A-deild
Launþegar sem hafa verið virkir sjóðfélagar í A-deild LSR eða A-deild Brúar frá því fyrir 1. júní 2017 eiga enn rétt á jafnri ávinnslu lífeyrisréttinda. Ef þessir sjóðfélagar starfa hjá launagreiðendum sem eru ekki að meirihluta fjármagnaðir með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum eða framlögum þurfa launagreiðendur að greiða sérstakt lífeyrisaukaiðgjald til viðbótar við hefðbundið 11,5% iðgjald launagreiðanda til að rétturinn haldist.
Ef þetta iðgjald er ekki greitt reiknast réttindi viðkomandi sjóðfélaga í aldurstengdri ávinnslu og eftir 12 mánuði án lífeyrisaukaiðgjalds fellur niður réttur til jafnrar ávinnslu.
Lífeyrisaukaiðgjaldið er breytilegt ár frá ári og tekur nýtt iðgjaldahlutfall gildi 1. janúar ár hvert.
Hefðbundið mótframlag:
11,5%
Lífeyrisaukaiðgjald 2024:
4,58%
Heildarframlag vinnuveitanda:
16,08%
Lífeyrisaukaiðgjald 2025:
4,67%
Heildarframlag vinnuveitanda 2025:
16,17%
Umsókn um aðild að A-deild
A-deild LSR tekur við nýjum sjóðfélögum sem uppfylla aðildarskilyrði deildarinnar. Vinnuveitandi þarf að fylla út umsókn um aðild að A-deild sem má finna hér til hliðar. Ef launþegi er þegar sjóðfélagi hjá LSR eða Brú og á rétt á jafnri ávinnslu þarf að fylla út lið 5, sem varðar sérstakt iðgjald, lífeyrisaukaiðgjald, sem fjallað er um hér fyrir ofan.