Fara á efnissvæði
Mínar síður

Fjölbreytt og sveigjanleg fasteignalán

Hjá LSR getur þú fengið fasteignalán ef þú hefur greitt iðgjald til LSR einhvern tímann á síðastliðnum 5 árum. Fasteignalán LSR fást bæði verðtryggð og óverðtryggð. Ekki þarf að greiða uppgreiðslugjald, hvorki þegar greitt er inn á lán né þegar það er greitt upp að fullu.

3

Fjöldi lánategunda

9%

Óverðtryggt lán, vextir breytilegir á 36 mán. fresti

4,5%

Verðtryggt lán, vextir breytilegir á 36 mán. fresti

4,5%

Verðtryggt lán, vextir fastir út lánstímann

75.000.000 kr.

Hámarksfjárhæð láns

1.000.000 kr.

Lágmarksfjárhæð láns

5 - 40 ár

Lánstími verðtryggðra lána

3 - 40 ár

Lánstími óverðtryggðra lána

Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá lán?

  • Lán eru einungis veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði á Íslandi til eigin nota þar sem lántaki hefur eða verður með lögheimili.
  • Fjárhæð þess láns sem sótt er um ásamt lánum sem standa framar í veðröð mega að hámarki vera 65% af fasteignamati eða söluverði fasteignar samkvæmt kaupsamningi.
  • Hámarksveðsetning getur þó farið í allt að 70% af fasteignamati eða söluverði fasteignar samkvæmt kaupsamningi ef LSR lánar gegn 1. veðrétti eða ef LSR lánar í samfelldri veðröð frá og með 1. veðrétti.
  • Hámarksveðsetning takmarkast einnig alltaf af því að fjárhæð lána á viðkomandi fasteign getur aldrei orðið hærri en samtala brunabótamats og lóðarmats.
  • Allir þinglýstir eigendur/kaupendur viðkomandi fasteignar þurfa að gerast lántakar og standast greiðslumat og lánshæfismat.

Hvernig sæki ég um lán?

Lánsumsókn er stofnuð á Mínum síðum. Í umsóknarferlinu er m.a. farið í gegnum rafrænt greiðslumat sem greitt er fyrir skv. gjaldskrá.

Fyrir fasteignakaup þarf að skila inn:

  • Undirrituðu kauptilboði/kaupsamningi vegna fasteignar sem verið er að kaupa
  • Undirrituðu kauptilboði/kaupsamningi vegna fasteignar sem verið er að selja, ef við á
  • Staðfestingu á fé sem á að nota til fasteignakaupa (ef ekki á að nota fé úr sölu fasteignar)

Ef um skilnað eða sambúðarslit er að ræða þarf að skila inn

  • Fjárskipta- og skilnaðarsamningi staðfestum af sýslumanni
  • Staðfestingu á skiptingu eigna og skulda, undirrituðu af báðum aðilum

Ef þú uppfyllir eitthvert þessara skilyrða getur þú sótt um fasteignalán hjá LSR:

  • Hefur greitt iðgjald til LSR einhverju sinni á sl. 5 almanaksárum
  • Hefur einhvern tímann greitt iðgjald til LSR og ekki greitt iðgjald til annars lífeyrissjóðs eftir að greiðslum til LSR lauk
  • Ert lífeyrisþegi hjá LSR og hefur greitt iðgjald til LSR í a.m.k. 10 ár samtals
  • Ert makalífeyrisþegi hjá LSR og maki þinn hefði átt lánsrétt