Fara á efnissvæði
Mínar síður
Fréttayfirlit

Vaxtalækkun á óverðtryggðum lánum

28. mars 2025

Vextir á nýjum óverðtryggðum lánum LSR lækka um 0,2 prósentustig, úr 8,5% í 8,3%, frá og með föstudeginum 28. mars 2025. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Hus Mynd

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú 4,5%, bæði á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og lánum þar sem vextir eru fastir í 36 mánuði í senn.

Hér má finna nánari upplýsingar um fasteignalán hjá LSR.