Skyldubundið lífeyrisiðgjald er 15,5%, af launum en frá 1. júlí mun sjóðfélögum LSR bjóðast að láta 1,5%, 2,5% eða 3,5% af launum renna í tilgreinda séreign, og lækka þá iðgjald í samtryggingu á móti.
Helstu einkenni tilgreindrar séreignar eru að:
- Hún er einkaeign sjóðfélaga og verður því erfanleg.
- Hægt er að fá hana greidda út frá 62 ára aldri án þess að hefja töku eftirlauna.
- Hægt er að nýta hana til greiðslu inn á fasteignalán vegna fyrstu íbúðarkaupa.
Hafa verður í huga að með því að greiða í tilgreinda séreign lækkar iðgjald í samtryggingu. Það þýðir að:
- Samtryggingarlífeyrir til æviloka lækkar.
- Réttindi til örorku- og makalífeyris lækka.
Mikilvægt að sjóðfélagar kynni sér vel heildaráhrif þess að greiða í tilgreinda séreign.