Grétar Már Axelsson hefur verið ráðinn sjóðstjóri á eignastýringasviði. Grétar kemur inn í teymi eignastýringar fyrir erlendar fjárfestingar með áherslu á skráð verðbréf og mun styðja við stefnu sjóðsins um að veita erlendum fjárfestingum meira vægi í ört vaxandi eignasafni LSR. Grétar hefur víðtæka reynslu af greiningum og fjárfestingum og starfaði áður m.a. hjá Almenna lífeyrissjóðnum, Íslandssjóðum, Glitni og Vodafone. Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MS-gráðu í fjármálum frá Aarhus School of Business. Grétar hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Þá hefur sjóðurinn ráðið þau Hafdísi Mist Bergsteinsdóttur og Jón Böðvarsson á sviðið stafræn þróun og rekstur. Ráðning þeirra er liður í aukinni áherslu sjóðsins á nýtingu stafrænna lausna í starfsemi sinni, bæði í þjónustu við sjóðfélaga og uppbyggingu innri kerfa.
Hafdís er ráðin í stöðu sérfræðings í hagnýtingu gagna og kemur hún frá fyrirtækinu Expectus, þar sem hún hafði starfað í tvö ár við gagnavinnslu og þróun eftir að hafa lokið námi. Hafdís er með MSc. gráðu í iðnaðarverkfræði og stjórnun frá DTU í Danmörku og BSc. gráðu í verkfræði frá HÍ.
Jón er ráðinn í starf leiðandi forritara hjá sjóðnum. Jón hefur starfað við forritun síðustu fimm ár hjá Nanitor og Samskipum, en þar áður hafði hann m.a. unnið í tækniveri Vodafone. Jón er með BSc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.