LSR innleiddi þá jafnlaunakerfi sem hefur það að markmiði að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Með slíku kerfi koma fyrirtæki og stofnanir sér upp stjórnkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
iCert staðfesti árið 2021 að kerfið sé í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og veitti sjóðnum þá jafnlaunavottun. Vottunin er gefin út til þriggja ára í senn, en árlega er gerð úttekt til að meta hvort starfsemin uppfylli skilyrði vottunarinnar.
LSR hefur staðist þessa úttekt árlega frá því að jafnlaunavottunin var gefin út 2021 og í kjölfar nýjustu úttektar sjóðsins hefur jafnlaunavottunin því verið endurnýjuð til ársins 2027.