Undanfarin þrjú ár hafa eignir LSR aukist um 235,5 milljarða króna. Þar af lagði ríkið til fjárhæð sem nemur 117,2 milljörðum króna í lok árs 2016 vegna breytinga á lögum á A-deild LSR. Þetta framlag ríkisins á að tryggja lífeyrisréttindi núverandi sjóðfélaga og mæta halla á stöðu sjóðsins.
Góð eignadreifing er í verðbréfasafni LSR sem endurspeglar góða áhættudreifingu. Í árslok 2016 voru 56,6% af eignum sjóðsins í skuldabréfum, þar af 37% í skuldabréfum með ríkisábyrgð, 12,7% í innlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum, 23,5% í erlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum og 7,1% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 25% í árslok.
Nafnávöxtun innlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina var 0,7% á árinu en það er 7,6% umfram viðmiðunarvísitölu. Nafnávöxtun erlendra hlutabréfa og hlutdeildarskírteina var -8,2% á árinu en styrking krónunnar hafði umtalsverð áhrif á ávöxtun erlendra eigna þar sem krónan styrktist um 18,4%. Á árunum 2012-2015 var raunávöxtun erlendra hlutabréfa mjög góð í safni LSR eða að meðaltali 10,2%.
Á árinu 2016 fengu 21.681 sjóðfélagi eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá sjóðnum, samtals 43,5 milljarða króna. Að meðaltali greiddu 30.324 sjóðfélagar iðgjald til sjóðsins á árinu, samtals að fjárhæð 28,3 milljarða króna.