Innlent eignasafn LSR
Metið út frá umhverfis-, félagsþáttum og stjórnarháttum (UFS)
Mikilvægur þáttur í því að fylgja eftir sjálfbærnistefnu er að greina UFS-upplýsingar og birta niðurstöður opinberlega. Í sjálfbærnistefnu hvetur LSR þau félög sem sjóðurinn fjárfestir í til að sýna gagnsæi og skýra frá því með opinberum hætti hvernig starfsemi félaganna samræmist viðurkenndum viðmiðum hvað varðar t.d. sjálfbæran rekstur. Hlutverk LSR sem fjárfestis er að greina þessar upplýsingar fyrir einstakar fjárfestingar og eignasafnið í heild sinni og skoða árangur af fjárfestingarstarfseminni.
UFS-mat innlendra eigna
Innlent eignasafn LSR er metið út frá svonefndum UFS-þáttum.
Umhverfisþættir snúa að því hvernig fyrirtæki gætir að umhverfislegum áhrifum starfsemi sinnar.
Félagsþættir snúa t.d. að því hvernig fyrirtæki kemur fram við starfsfólkið sitt, birgja, viðskiptavini og samfélagið sem það starfar í.
Stjórnarhættir snúa t.d. að stjórnun fyrirtækja, starfskjörum, innra eftirliti og réttindum hluthafa.
UFS-mat veitir yfirsýn yfir hvernig félög standa sig varðandi sjálfbærni í rekstri og hvaða UFS-áhættur kunna að vera í starfseminni. UFS-einkunn félaga í eignasafni LSR byggir á UFS-mati frá Reitun hf. sem byggir mat sitt bæði á opinberum upplýsingum og fundum með forsvarsmönnum félaga. Félögum eru gefin stig fyrir umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhætti á skalanum 0 til 100, þar sem 100 er hæsta einkunn. Á grafinu fyrir neðan má sjá samanburð innlends eignasafns LSR á milli ára m.v. eignastöðu 31. desember ár hvert, eftir einkunnagjöf félaga í eignasafninu.
UFS einkunn innlends eignasafns LSR
Einkunnaskali
Félögum í eignasafni er gefin einkunn frá A1-D, þar sem A1 er hæsta mögulega einkunn og D sú lægsta.
A1-A3
Framúrskarandi
B1-B3
Gott
C1-C3
Miðlungs
D
Slakt
UFS-Einkunn | Neðri mörk | Efri mörk |
A1 |
97 | 100 |
A2 |
92 | 96 |
A3 Arion banki hf., ÍL-sjóður, Kvika banki hf., Landsbankinn hf., Orkuveita Reykjavíkur, Ríkissjóður, Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. |
86 | 91 |
B1 Íslandsbanki hf., Marel hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Heimar hf., Vátryggingafélag Íslands hf. |
80 | 85 |
B2 Akureyrarbær, Alvotech S.A., Bláa lónið, Brim hf., Búseti húsnæðissamvinnufélag, Byggðastofnun, Eimskipafélag Íslands hf., Embla Medical, Festi hf., Hampiðjan hf., HS orka hf., Íslandshótel hf., Kópavogsbær, Landsnet hf., Lánasjóður sveitarfélaga ohf., Rarik ohf., Reitir fasteignafélag hf., Reykjavíkurborg, Sýn hf. |
70 | 79 |
B3 Eik fasteignafélag ehf., Félagsbústaðir hf., Hagar hf., HS Veitur hf., Icelandair Group hf., Síldarvinnslan hf., Síminn hf., Sveitarfélagið Árborg. |
60 | 69 |
C1 Iceland Seafood International hf., Nova klúbburinn hf. |
50 | 59 |
C2 Alma leigufélag ehf. |
40 | 49 |
C3 |
30 | 39 |
D |
0 | 29 |
Sundurliðun stiga í UFS-þætti
Sé einkunnagjöf í innlendu eignasafni LSR dregin saman má sjá að heildareinkunn safnsins er 81 af 100 mögulegum, sem er hækkun um eitt stig á milli ára. Það er mismunandi hversu mikið umhverfisþættir, félagsþættir og stjórnarhættir vega hjá hverju og einu undirliggjandi félagi. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá sundurliðun einkunnar niður í umhverfisþætti, félagsþætti og stjórnarhætti.
81/100
Umhverfisþættir
83/100
Félagsþættir
78/100
Stjórnarhættir
81/100
Heild
0
Mikil áhætta
81
100
Lítil áhætta